Sérstakur vaxtastuðningur

Við álagningu opinberra gjalda 2024 er framteljendum ákvarðaður sérstakur vaxtastuðningur.    Inni á rsk.is má sjá upphæðir sem búsetar fá til lækkunar á mánaðargjöldum.

Nú er búið að gefa út mánaðargjöld fyrir ágúst (eindagi 2.sept) og fer vaxtastuðningurinn til lækkunar á fjármagnskostnaði fyrir þá sem fengu sérstakan vaxtastuðning.   Sjá má reikninga fyrir mánaðargjöldum í rafrænum skjölum í netbanka.   Lækkun mánaðargjalds má sjá undir liðnum "Annað".

Endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst.